Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,32% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.369 stigum. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 2,87% í litlum viðskiptum og gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,59%.

Gengi bréfa Eimskipafélagsins lækkaði um 1,47%, TM um 1,42% og Sjóvár um 1,42%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 537,9 milljónum króna og var mest velta með bréf Marels, eða sem nam 254,1 milljón króna.