Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq OMX hefur lækkað um 0,17% það sem af er degi og hefur gengi sjö fyrirtækja lækkað en það hefur hækkað hjá tveimur þierra. Hlutfallslega er lækkunin mest á gengi bréfa Nýherja, eða 4,7%, en það er í aðeins einnar milljónar króna viðskiptum. Þá hefur gengi bréfa VÍS lækkað um 2,13% og HB Granda um 0,78%.

Á hinn bóginn hefur gengi bréfa Össurar hækkað um 0,46%, einnig í einnar milljóna króna viðskiptum, og Icelandair Group um 0,23%. Velta í kauphöll það sem af er degi nemur 262 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum á Keldunni, og þar af nemur velta í viðskiptum með bréf Icelandair 108 milljónum króna.