Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0.29% í dag og endaði í 1,762 stigum.

Mest hækkaði gengi bréfa TM um 0.45%, gengi bréfa Reita um 0.24%, og bréfa Marel um 0.23%. Gengi bréfa Vodafone hækkuðu einnig um 0.40% en í minni viðskiptum þó.

Gengi bréfa Símans lækkaði um 0.27%, með veltu upp á hálfan milljarð. Fyrirtækið var skráð á markað síðasta fimmtudag og hafa bréf Símans verið veltuhæst marga daga í röð. Össur lækkaði einnig um 3.16% en þó í litlum viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var 2,17 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,59 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 2,1 ma. viðskiptum, en hún hefur hefur hækkað um 55% undanfarna tólf mánuði.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 3,3 ma. viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 0,9 ma. viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 2,3 ma. viðskiptum.