Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,06% í dag og endaði í 1,839 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,19% frá áramótum.

Mest hækkaði gengi bréfa Haga um 1,38% í 305 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 47,75 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa VÍS um 1,61% í 31 milljónar króna viðskiptum. Þá er verð á hlut 8,55 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 1,26% í 770 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut hljóðar þá upp á 35,35 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Regins, eða um 1,47% í viðskiptum sem hljóðuðu upp á 158 milljónir króna. Verð á hlut er þá 20,70 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmir 2,12 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,9 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,6% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA stóð í stað í dag í 4,9 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 3,9 milljarða króna viðskiptum.