Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,34% í dag og endaði í 1884,26 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,21% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 3,83% í viðskiptum sem hljóða upp á 256 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 65 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Reita, eða um 1,28% í 322 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Reita er þá 87 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 3,63% í 76 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut HB Granda er þá 238 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair Group einnig, eða um 0,66% í viðskiptum upp á 373 milljónir króna. Verð á hvern hlut er þá 37,45 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA  stóð í stað í dag í 2 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,6% í 4 milljarða viðskiptum.