Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,05% í dag og endaði í 1860,90 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 1,04% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 0,93% í viðskiptum sem hljóða upp á 353 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 64,9 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,64% í 521 milljónar króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel er þá 235 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans, eða um 1,6% í 227 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er 3,08 krónur. Þá stóð gengi bréfa Icelandair Group í stað í viðskiptum upp á 779 milljónir króna. Verð á hvern hlut er þá 37,20 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,7 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 2,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3% í dag í 9,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,5 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,5% í 8 milljarða króna viðskiptum.