Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,25% í dag og endaði í 1799,52 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,30% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 0,73% í viðskiptum sem hljóða upp á 179 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 48,35 krónum á hlut. Gengi bréfa Eikar hækkaði þá einnig, eða um 0,23% en þó aðeins í rúmlega 2 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 8,77 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 1,62% í viðskiptum sem hljóða upp á 229 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 34,83 krónur. Icelandair Group, eða um 0,15% í viðskiptum sem hljóða upp á 175 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 32,70 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 827 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 10,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 0,8 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 8 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 0,3 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,6% í 7,7 milljarða viðskiptum.