Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,06% í dag og endaði í 1797,33 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,42% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Reita, eða um 0,24% í viðskiptum sem hljóða upp á 145 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 84 krónum á hlut. Gengi bréfa Össurar hækkaði þá einnig, eða um 3,26% en aðeins í tæplega 8 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 475 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,39% í viðskiptum sem hljóða upp á 652 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 31,9 krónur. Gengi bréfa Símans lækkaði þá einnig, eða um 2,9% í viðskiptum sem hljóða upp á 306 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 3,01 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,9 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 12,8 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 1,2 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 3,2 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 3 milljarða króna viðskiptum.