Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,01% í dag og endaði í 1887,38 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,37% frá áramótum.
Í dag hækkaði mest gengi bréfa Marel, eða um 1,75% í viðskiptum sem hljóða upp á 486 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 262 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 2,57% í 178 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf HB Granda er þá 35,9 krónur.
Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,21% í 400 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Haga er 48,55 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,93% í viðskiptum upp á 291 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 35,6 krónur.
Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,5 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 2,2 milljarðar króna.