Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um launaþróun þeirra stéttarfélaga, sem eru með 100 félagsmenn eða fleiri og standa utan heildarsamtaka, með sambærilegum hætti og er að finna í riti aðila vinnumarkaðarins „Í aðdraganda kjarasamninga“, sem birt var í febrúar 2015. Er þar um að ræða stéttarfélög lækna, hjúkrunarfræðinga og verk- og tæknifræðinga. Samantektina má finna á vefsíðu ráðuneytisins .

Af samantektinni má ráða að frá nóvember 2006 til september 2014 hafi laun hjúkrunarfræðinga og verk- og tæknifræðinga þróast í stórum dráttum í hátt við launavísitölu og þannig haldið nokkurn veginn í við launaþróun annarra hópa. Þó sé launaþróun verk- og tæknifræðinga ívið lakari á tímabilinu en hjúkrunarfræðingar.

Hins vegar hefur launaþróun lækna aftur á móti ekki haldið í við launavístölu á þessu tímabili og drógust þeir verulega aftur úr öðrum hópum. Fram kemur að í því samhengi verði þó að hafa í huga að samsetning þeirra launa sé töluvert frábrugðin því sem þekkist hjá öðrum hópum. Þannig sé t.d. hlutfall reglulegra launa af heildarlaunum lægra hjá læknum en öðrum hópum. Það hafi þó ekki marktæk áhrif á launaþróun þeirra í samanburði við aðra á vinnumarkaði.