Fátt getur komið í veg fyrir að læknar leggi niður störf að nýju á miðnætti og hefji tveggja sólarhringa verkfall.

Læknar á Kvenna- og barnasviði Landspítala, Rannsóknarsviði Landspítala og á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins munu þá leggja niður störf í kvöld.

Sömu sögu er að segja um lækna á Heilbrigðisstofnunum Vestfjarða, Austurlands, Suðurnesja, Vesturlands, Norðurlands og Suðurlands.

Síðasti fundur í kjaradeilunni var á miðvikudag síðastliðinn og sá næsti er boðaður á þriðjudaginn næstkomandi. Ef ekki næst lausn á næstu dögum verða fleiri verkföll í vikunni. Á miðvikudaginn munu læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og Lyflækningasviði Landspítala fara í verkfall.