Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sagði að lagasetning á verkfall sjómanna yrði eins og „pissa í skóinn“ í Silfrinu í dag og hvatti deiluaðila til að hverfa frá þeim hugsunarhætti að ríkið komi að deilunni með sértækum aðgerðum.

Þorgerður furðaði sig á því að stjórnmálamenn, sem hefðu jafnframt átt sæti í ríkisstjórn, kalli eftir allskonar viðbrögðum. Benti hún á að ráðherra sé stöðugt í sambandi við deiluaðila og það er ekki heppilegt að þau samtöl rati í fjölmiðla. Sjómenn vilja ekki lagasetningu og með lagasetningu á verkfallið sé ekki verið að leysa nein verkefni heldur aðeins verið að pissa í skóinn.

Þorgerður sagði ekki hægt að réttlæta sértækar skattaaðgerðir inní verkfallið - þvert á móti sé einstakt tækifæri til að gera skattkerfið einfaldara. Hún sagði öfugsnúið að tala um að útgerðir eigi að greiða sanngjarnt verð fyrir auðlindina en krefjast svo þess að ríkið styrki sjávarútvegin með skattbreytingu. Ef útgerðin, SFS og stjórnmálamenn krefjist þess að ríkið komi að því að styrkja sjávarútveginn í formi skattaafsláttar þá sé það ný nálgun af hálfu útgerðarinnar.