Fundi utanríkisráðherra ríkja Eystrasaltsráðsins, sem haldinn var í Hörpu, lauk nú síðdegis. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra stýrði fundinum sem haldinn var í tilefni af 25 ára afmæli Eystrasaltsráðsins. Fundurinn markaði enn fremur lok formennsku Íslands í ráðinu.

Utanríkisráðherrarnir samþykktu meðal annars að stofna stefnumótunarhóp, sem skila á skýrslu um framtíðarhlutverk ráðsins og samstarf á svæðinu að ári. Auk þess var fjallað um þátt svæðisbundins samstarfs við innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Í ræðu sinni á fundinum lagði utanríkisráðherra meðal annars áherslu á mikilvægi Eystrasaltsráðsins og svæðisbundinnar samvinnu, ekki síst á tímum óvissu og áskorana í Evrópu.

„Gildi samtalsins er ótvírætt og ég er mjög ánægður með að utanríkisráðherrar ríkja Eystrasaltsráðsins hafi komið hér saman til fundar - í fyrsta skipti síðan átök brutust út í Úkraínu. Þá hafa áherslur okkar í Eystrasaltsráðinu mælst einkar vel fyrir og ánægjulegt að ljúka formennskutímabilinu á vel heppnuðum utanríkisráðherrafundi í Reykjavík,“ sagði Guðlaugur Þór sem afhenti utanríkisráðherra Svíþjóðar formennskukeflið í lok fundar.

Í formennskutíð sinni lagði Ísland áherslu á lýðræði, jafnrétti og börn, og stóðu stjórnvöld fyrir margvíslegum viðburðum á formennskuárinu, meðal annars rakarastofuráðstefnu nú í vor.

Þá átti utanríkisráðherra tvíhliða fund með Sven Mikser, utanríkisráðherra Eistlands, þar sem tvíhliða samskipti ríkjanna, öryggis- og varnarmál og Brexit voru meðal umræðuefna. Guðlaugur Þór mun enn fremur eiga tvíhliða fundi í fyrramálið með utanríkisráðherrum Póllands og Danmerkur.

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992 en aðild að ráðinu eiga Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin, Rússland, Pólland og Þýskaland, auk Evrópusambandsins.