Knattspyrnusamband Íslands staðfesti á blaðamannafundi klukkan tvö í dag að Lars Lagerbäck verði áfram aðalþjálfari íslenska landsliðsins og Heimir Hallgrímsson verður áfram aðstoðarþjálfari. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, greindi blaðamönnum frá þessu.

Samningar um áframhaldandi samstarf hafa þegar verið undirritaðir. „Við höfum náð samningum og undirritað samninga um að Lars og Heimir haldi áfram með landsliðið,“ sagði Geir Þorsteinsson samkvæmt frásögn Vísis .

Lagerbäck og Heimir hafa verið með landsliðið í um það bil tvö ár.