Lággjaldaflugfélög frá Þýskalandi, Bretlandi og Skandinavíu kanna nú möguleika á því að hefja millilandaflug frá Akureyri. Svo gæti farið að millilandaflug frá Akureyri hefjist næsta sumar, að því er fram kemur á norðlenska miðlinum Vikudegi.

Meðal þeirra flugfélaga sem sýnt hafa Akureyri áhuga eru Easy Jet og Norwegian. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segist í samtali við Vikudag vonast til að millilandaflug frá Akureyri hefjist næsta sumar en þó sé ómögulegt að staðfesta tímasetningu.