Ríkisstjórn Ísland leggur til við velferðarnefnd breytingar á frumvarpi um almannatryggingar. Helstu breytingarnar sem þau lögðu til voru þær að lífeyrisgreiðslur bæði aldraðra og öryrkja hækki í 280 þúsund krónur um áramótin og 300 þúsund krónur frá ársbyrjum 2018. Einnig væri sett á frítekjumark á allar tekjur eldri borgara, sem verði 25.000 krónur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Forsætisráðuneytinu.

Á fundi ríkisstjórnar í dag var skoðað að auka framlög til almannatrygginga á stöðu ríkisfjármála. Ríkistjórnin leggur því til eftirfarandi breytingar:

  • „Eldri borgurum sem halda einir heimili verði tryggðar 300 þúsund krónur á mánuði frá 1. janúar 2018, enda hafi þeir ekki aðrar tekjur sem hafa áhrif á fjárhæð bótanna.
  • Bæturnar hækki í 280 þúsund krónur um næstu áramót. Seinna á árinu 2018 mun kauptrygging á vinnumarkaði einnig ná 300 þúsund krónum samkvæmt
    kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.
  • Framfærsluviðmið öryrkja verði jafnframt 300 þúsund krónur á mánuði frá sama tíma.
  • Frítekjumark verði sett á allar tekjur eldri borgara, hvort heldur sem er
    lífeyrissjóðstekjur, atvinnutekjur eða fjármagnstekjur. Frítekjumarkið, sem undanþegið er við útreikning bóta, verði 25 þúsund krónur. Þessi breyting samsvarar 25 þúsund króna aukningu ráðstöfunartekna hjá stærstum hluta eldri borgara umfram það sem gert var ráð fyrir í frumvarpinu.
  • Hækkun lífeyristökualdurs verði hraðað um 12 ár. Hækkun lágmarkslífeyristökualdurs úr 67 árum í 70 ár eigi sér þannig stað á 12 árum en ekki 24 árum eins og áður var ráðgert.

„Árlegur viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna þessara breytinga er áætlaður um 4,5 milljarðar króna sem bætist við þær 5,0 til 5,5 milljarða króna sem voru áætluð kostnaðaráhrif frumvarps um almannatryggingar,“ segir að lokum í fréttatilkynningunni.