Fyrir liggur að nokkrar breytingar verða á stjórn Árvakurs á aðalfundi þess sem haldinn er þann 28. apríl næstkomandi.

Meðal annars verður þar lagt til að Þór Sigfússon, sem kemur nýr inn í stjórnina, verði stjórnarformaður Árvakurs og Stefán Eggertsson verði varaformaður.

Aðrir í aðalstjórn verði Kristinn Björnsson, Skúli Valberg Ólafsson og Ásdís Halla Bragadóttir, sem einnig kemur ný inn í stjórn.