Stjórn Dagsbrúnar samþykkti í dag að leggja til við hluthafafund að Dagsbrún verði skipt upp í tvö rekstrarfélög, sem bæði verði skráð í Kauphöll Íslands, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Þar segir að félögin verða annars vegar fjölmiðlafélag, 365 hf., og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélag, Teymi hf.

?Á undanförnum tveimur árum hefur verið unnið að því að styrkja bæði fjölmiðla- og fjarskiptahluta Dagsbrúnar með innri og ytri vexti. Við teljum að því verki sé lokið og eftir standi tvö félög sem hvort um sig hafi sterka stöðu á markaði og séu skýr valkostur fyrir fjárfesta. Nú hefst nýr kafli þar sem starfsemi hvors félags um sig verður samþætt og innviðir styrktir," segir Þórdís J. Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar.

Áætlað er að stofna sérstakt félag utan um eignir sem ekki falla að kjarnastarfsemi félaganna tveggja, í minnihlutaeigu hvors um sig, með aðkomu þriðja aðila. Jafnframt er stefnt að sölu fasteigna Dagsbrúnar bæði á Íslandi og í Bretlandi. Áætlað er að þessar aðgerðir lækki skuldsetningu félaganna tveggja um 13-14 milljarða króna.

Gangi tillögurnar eftir mun fjölmiðlafélagið verða rekið undir kennitölu Dagsbrúnar en nýtt félag verður stofnað um fjarskipta- og upplýsingatæknihlutann. Markmiðið með skiptingunni er að skerpa áherslur í rekstri dótturfélaga Dagsbrúnar, einfalda fjármagnsskipan þeirra og að gefa hluthöfum Dagsbrúnar kost á að verða beinir aðilar að fjarskipta- og upplýsingatækni félaginu Teymi.

Hluthafar í Dagsbrún verða jafnframt hluthafar í Teymi og eignast hluti í félaginu í sömu hlutföllum og þeir áttu í Dagsbrún. Unnið er að undirbúningi skráningar hlutabréfa Teymi í Kauphöll Íslands og er ráðgert að skráningunni verði lokið fljótlega í kjölfar skiptingar Dagsbrúnar.

Ari Edwald verður forstjóri 365 hf. og Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis hf. Viðar Þorkelsson fjármálastjóri Dagsbrúnar verður fjármálastjóri 365 hf.

Skiptingaráætlun og önnur gögn hafa verið send Lögbirtingarblaði til birtingar og stefnt er að því að hluthafafundur verði haldinn um miðjan október. Skiptingin miðast við 1. júlí 2006.