Arion banki kynnti nýja umhverfisstefnu í síðustu viku. Í ávarpi Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka, í ársskýrslu bankans kom fram að stjórn bankans hefði sett sér umhverfisstefnu í desember. Bankinn hygðist meta lánasafn bankans út frá grænum viðmiðum og setja markmið í þeim efnum. Þá sé stefnt að því að taka í meira mæli þátt í fjármögnun grænna innviðaverkefna.
Meðal þeirra mála sem vakið hafa hvað mesta athygli í rekstri Arion banka undanfarin ár eru útlánatöp eftir gjaldþrot kísilvers United Silicon og flugfélganna Wow air og Primera Air. Alls nemur tap bankans af gjaldþroti félaganna þriggja um tuttugu milljörðum króna. Allt voru þetta félög sem skildu eftir sig töluvert kolefnisfótspor af sinni starfsemi.
Sjá einnig: Arion úr bláu í grænt
Arion banki tók kísilverið yfir eftir gjaldþrotið og vinnur að endurbótum á því. Markmiðið er að gangsetja það á ný og selja að lokum. Íbúar í Reykjanesbæ í nágrenni við kísilverið hafa sett sig upp á móti því að það verði endurræst, m.a. vegna ólyktar og óþæginda í öndunarfærum sem komu upp á meðan framleiðsla var í kísilverinu.
Benedikt segir að að fara þyrfti vel yfir beiðni um lánveitingu til verkefnis á borð við kísilvers. „Það myndi að minnsta kosti fá okkur til að fara mjög vel yfir það. Við munum taka meira tillit til umhverfisþátta í okkar starfsemi. Hvert væri kolefnissporið ef þetta væri framleitt annars staðar? Það er hægt að færa rök fyrir því að slík starfsemi sem knúin er áfram af grænni orku sé umhverfisvænni en til að mynda sambærileg starfsemi knúin áfram af kolaorkuveri í Kína.“
Þá geti lánveitingar til flugfélaga einnig stuðlað að minna vistspori. „Ef flugfélag myndi koma til okkar og vill endurnýja hjá sér flugflotann og draga úr kolefnisspori í rekstrinum væri það mjög jákvætt verkefni. Við myndum vilja horfa á það út frá því hvað stuðlar að breytingum í jákvæða átt.“
N ánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .