Hörður Felix, Harðarson, hrl. hefur, með vísan í lög um gjaldþrotaskipti boðað til fundar með lánardrottnum Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur) en Hörður Felix er aðstoðarmaður á greiðslustöðvunartíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum en fundurinn verður haldinn í fundarsal á 2. hæð í Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 5. júní 2009 kl. 10.00.

Í tilkynningunni kemur fram að á fundinum verður gerð grein fyrir stöðu félagsins og áætlunum um aðgerðir til að koma nýrri skipan á fjármál þess og leitað eftir viðhorfi fundarmanna til þeirra ráðagerða.