Í kjölfar svokallaðs óformlegs greiðslustöðvunarferlis hefur viðræðum milli eigenda Nýsis hf. og helstu lánardrottna félagsins, NBI hf., Landsbanka Íslands hf., Nýja Glitnis Banka hf., Nýja Kaupþings Banka hf., SPRON, Byr sparisjóðs ásamt fleirum nú lokið með yfirtöku lánardrottna á öllu hlutafé í Nýsi hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu Nýsis til Kauphallarinnar en þar kemur fram að helstu lánardrottnar Nýsis hafa undanfarna mánuði unnið sameiginlega í óformlegu greiðslustöðvunarferli að því að tryggja verðmæti í félaginu í samræmi við vinnubrögð hinnar svokölluðu Lundúnarleiðar um úrlausn vanda fyrirtækja í fjárhagslegum erfiðleikum.

Í tilkynningunni kemur fram að haft var til grundvallar að hin óformlega greiðslustöðvun skyldi leiða til þess að kröfuhafar væru betur staddir að afloknu þessu ferli en ef til gjaldþrots hefði komið.

„Að mati helstu lánardrottna félagsins, sem og óveðtryggra kröfuhafa, er reynsla síðustu mánaða jákvæð og ítrekar mikilvægi samstarfs kröfuhafa við úrlausn erfiðra útlánamála,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að samhliða formlegri aðkomu aðila að félaginu munu lánardrottnar félagsins nú vinna að því að ljúka endurskipulagningu þess með sölu eða lokun óarðbærra dótturfélaga Nýsis í huga.

„Markmið endurskipulagningarinnar er að tryggja rekstrarhæfi Nýsis hf. og valdra dótturfélaga en það er ljóst að yfirstandandi efnahagsþrengingar ásamt gengisfalli íslensku krónunnar og hárri verðbólgu hefur rýrt eigið fé Nýsis hf. og dótturfélaga til mikilla muna,“ segir í tilkynningunni.

Þá er þess getið að fyrri eigendur Nýsis hafa nú þegar gengið frá sölu á hlut félagsins í Meritum ehf. (móðurfélagi Miða.is og Billetlugen APS) til Straums Burðaráss Fjárfestingabanka og óskað eftir því að Nýsir fasteignir hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta enda hefur skuldastaða félagsins versnað umtalsvert síðastliðið ár og vanskil félagsins og dótturfélaga þess gagnvart NBI hf. (áður Landsbanka Íslands hf.) meiri en við var ráðið.

Ennfremur standa yfir viðræður um sölu á hlutum Nýsis í þróunarverkefnum félagsins við hlið Tónlistarhússins á austurbakka Reykjavíkurhafnar og yfirtöku Landsbanka Íslands hf. á dótturfélögum Nýsis í Bretlandi.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að með formlegri yfirtöku helstu lánardrottna Nýsis á félaginu hefst nú næsta stig í endurskipulagningu þess.

Vonir standa til að niðurstaða um framtíðareignarhald félagsins og dótturfélaga muni skýrast á næstu 2-3 mánuðum.

Fyrrverandi eigendur Nýsis, þeir Sigfús Jónsson og Stefán Þórarinsson, hafa ennfremur sagt skilið við félagið en framkvæmdastjóri félagsins frá og með 16. febrúar verður Haraldur L. Haraldsson.