Áætluð útgjáfa skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2011, til fjármögnunar á nýjum útlánum, er 7-9 milljarðar króna. Lánasjóðurinn lánar eingöngu það fé sem hann hefur fengið að láni. Því veltur áætlun um útlán alfarið á því hvernig gengur að afla lánsfjár á árinu, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar.

„Lánasjóður sveitarfélaga áætlar að greiða lánadrottnum sínum u.þ.b. 9 milljarða króna árið 2011. Lánasjóðurinn áætlar að afborganir sveitarfélaga af lánum til lánasjóðsins verði u.þ.b. 8,5 milljarðar króna árið 2011.“

Tekið er fram að áætlunin miðist við núverandi aðstæður á markaði. „Verði breytingar á markaðsaðstæðum má reikna með að ofangreind áætlun geti breyst. Lánasjóður sveitarfélaga endurskoðar áætlanir sínar hálfsárslega og oftar ef þörf krefur.“