Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokknum LSS150224.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð allt að 500 milljónir króna að nafnvirði en áskilur sér þó rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Eftirfarandi bönkum og verðbréfafyrirtækjum hefur verið boðið að gera tilboð: Arion banki (áður Nýja Kaupþing), Byr Sparisjóður, H.F. Verðbréf, Íslandsbanki, Íslensk verðbréf, Jöklar Verðbréf, MP Banki, NBI, Saga Capital Fjárfestingarbanki, VBS fjárfestingarbanki og Virðing.

Sem fyrr segir er útboðsfjárhæðin 500 milljónir króna en lágmarkstilboð er 10 milljónir króna. Eins og nafn skuldabréfaflokksins gefur til kynna er gjalddagi hans þann 15. febrúar 2024. Endurgreiðslur verða jafnar hálfsárslegar greiðslur og fastir vextir 3,75%.