Lánasýslan verður með kynningarfund á morgun, föstudag kl. 8.30 um nýtt markflokkakerfi ríkisbréfa þar sem boðið verður upp á léttan morgunverð og fjölmiðlum gefst kostur á að spyrja spurninga.

Á fundinn er einnig boðið innlendum fjármálastofnunum. Símafundur verður haldinn fyrir erlenda aðila kl. 10:00, sama dag.