Landfestar ehf., dótturfélag Arion banka hf., hefur lokið fyrsta áfanga fjármögnunar félagsins en skuldabréfaflokkurinn LFEST1 10 1 hefur verið tekinn til viðskipta í Kauphöll (Nasdaq OMX Iceland hf.).

Um er að ræða eignatryggða útgáfu þar sem tryggingar eru fasteignir í eigu dótturfélags Landfesta. Meðal fasteigna í eigu Landfesta eru Borgartún 26 þar sem ÁTVR, 10-11, Lex lögmannsstofa og skilanefnd og slitastjórn Kaupþings eru meðal annarra til húsa.

Skuldabréfaútgáfan er ein fárra frá október 2008 þar sem útgefandi er ekki opinber aðili eða fyrirtæki í eigu hins opinbera.