Landhelgisgæslan nýtur áberandi mest trausts meðal almennings samkvæmt könnun MMR um traust almennings til helstu stofnana á sviði réttarfars og dómsmála.

Þannig treysta rúmlega 80% landsmanna Landhelgisgæslunni en aðeins 4,5% sögðust treysta Landhelgisgæslunni lítið.

Þá njóta Sérstakur saksóknari og Ríkislögreglustjóri einnig mikils traust eða á bilinu 55 – 60%.

Helstu breytingarnar frá fyrri könnun eru þær að talsvert fleiri bera lítið traust til Hæstaréttar eða 34,7%, miðað við 29,1% í október 2010. Einnig eru marktækt fleiri sem bera lítið traust til Fangelsismálastofnunar, fer úr 17,5% í október 2010 í 22,1% í dag.

Þá fer traust til Sérstaks saksóknara vaxandi en 59,8% svarenda ber mikið traust til hans í dag samanborið við 54,8% í október 2010 og 52,8% í október 2009.

Þá fjölgar í hópi þeirra sem segjast bera mikið traust til Dómsmálaráðaneytisins, fer úr 24,5% í október 2010 í 30,2% í febrúar 2011.

Sjá könnun MMR í heild sinni.