Stór hluti svarenda í könnur MMR á trausti almennings til stofnana á sviði eftirlits og löggæslu, eða 77,6%, segjast bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar.

Þessi fjöldi skipar Landhelgisgæslunni á bekk með Lögreglunni á lista yfir þær stofnanir sem njóta mests trausts meðal Íslendinga (sbr. könnun MMR frá í september 2009 þá naut Lögreglan trausts meðal 80,9% svarenda).

Fram kemur í könnuninni að einungis 5% svarenda segjast bera lítið traust til Landhelgisgæslunnar – sem þýðir með öðrum orðum að 15,5 sinnum fleiri segjast bera mikið traust til Gæslunnar en segjast bera lítið traust til hennar.

Þá nýtur embætti Ríkislögreglustjóra mikils trausts meðal 47,1% svarenda, samanborið við 19,6% sem segjast bera lítið traust til embættisins (þ.e. 2,4 sinnum fleiri treysta embættinu en vantreysta því).

Fangelsismálastofnun nýtur mikils trausts meðal 42,1% svarenda, samanborið við 16% sem segjast bera lítið traust til stofnunarinnar (þ.e. 2,6 sinnum fleiri treysta embættinu en vantreysta því).

Hins vegar kemur fram að Útlendingastofnun sker sig úr að því leitinu til að hún nýtur lítils trausts meðal fleiri (28,0%) en segjast bera mikið traust til hennar (23,3%). Það er, 20% fleiri segjast bera lítið traust til stofnunarinnar en segjast bera mikið traust til hennar.

Könnunin var gerð frá 13.-16. október 2009 en 968 einstaklingar svöruðu könnuninni.

Sjá könnunina í heild sinni hér (pdf skjal)