Stjórn Landic Property hf. hefur óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að félaginu verði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Jafnframt sóttu í dag nokkur dótturfélög Landic Property í Danmörku um greiðslustöðvun fyrir dómstólum í Kaupmannahöfn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en fram kemur að starfsemi dótturfélaga Landic Property sem eiga og reka fasteignasöfn samstæðunnar í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Finnlandi er óbreytt.

„Leigutakar félagsins verða ekki fyrir áhrifum vegna greiðslustöðvanna,“ segir í tilkynningunni.

„Með greiðslustöðvun umræddra félaga er gætt jafnræðis meðal kröfuhafa Landic Property á meðan lokið er við endurskipulagningu félagsins og gengið frá samningi um sölu á eignasöfnum Landic Property í Danmörku og Svíþjóð,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Þá kemur fram að á Íslandi gildir greiðslustöðvunin einungis fyrir móðurfélagið, Landic Property hf., en ekki íslensk dótturfélög. Í Danmörku hafa eftirtalin dótturfélög Landic Property sótt um greiðslustöðvun: Landic Property A/S, Keops Development A/S, Landic Investment A/S og Keops Bolig A/S auk nokkurra félaga sem stofnuð voru um einstök þróunarverkefni félagsins.