Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Birgi Jakobsson aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu. Birgir tekur til starfa 1. apríl næstkomandi þegar hann lætur af embætti landlæknis að því er fram kemur á vef ráðuneytisins.

Birgir hefur gegnt embætti landlæknis frá 1. janúar 2015. Fyrir þann tíma starfaði hann í Svíþjóð um langt árabil þar sem hann gegndi ýmsum stjórnunarstöðum við sjúkrahús þar í landi. Sérgrein Birgis er barnalækningar og árið 1988 lauk hann doktorsprófi frá Karolinska Institutet.

Hann gegndi um árabil yfirlæknisstöðu á barnadeild Huddinge sjúkrahússins í Stokkhólmi, árið 2003 tók hann við starfi sjúkrahússtjóra við Capio St. Görans sjúkrahússins í Stokkhólmi og frá árinu 2007 var hann forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi þar til hann var skipaður landlæknir.

Svandís Svavarsdóttir segir mikinn feng í Birgi sér til aðstoðar við þau stóru og flóknu verkefni sem heyra undir embætti heilbrigðisráðherra. Hann hafi viðamikla þekkingu á heilbrigðiskerfinu, bæði á sviði stjórnunar og stefnumótunar og fagþekking hans sem læknis sé einnig mikilvæg.

Sem landlæknir hafi hann öðlast mikilvæga yfirsýn yfir íslenska heilbrigðiskerfið. „Í Embætti landlæknis hefur Birgir komið fram með skýra sýn á ýmsa þætti sem hann telur mega betur fara í heilbrigðiskerfinu og um mótun heilbrigðisstefnu til framtíðar sem byggist á samfélagslegri sátt,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Áherslur hans falla vel að þeim verkefnum sem ég mun setja á oddinn á komandi misserum og ég hlakka til að vinna með honum.“ Birgir verður annar tveggja aðstoðarmanna Svandísar. Hinn aðstoðarmaður hennar er Iðunn Garðarsdóttir lögfræðingur sem tók til starfa í velferðarráðuneytinu í byrjun desember.