Dómstóll í New York hefur viðurkennt greiðslustöðvun þá sem Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Landsbanka Íslands hf. hinn 5. desember 2008. Viðurkenning þessi er veitt samkvæmt 15. kafla bandarísku gjaldþrotaskiptalaganna segir í tilkynningu frá bankanum.

Viðurkenning þessi veitir bankanum sambærilega vernd og greiðslustöðvun veitir bankanum á Íslandi og á evrópska efnahagssvæðinu, sbr. ESB tilskipun 2001/24/EB um endurskipulagningu og slit lánastofnana, í þeim tilgangi að hámarka verðmæti eigna og tryggja jafnræði kröfuhafa.