Landsbankinn hefur tekið tilboði Sigtúns Þróunarfélags í Landsbankahúsið á Selfossi sem hljómar upp á 352 milljónir króna. Fjögur tilboð bárust og var tilboð félagsins hæsta gilda tilboðið. Frá þessu er greint á heimasíðu Landsbankans.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá var húsið auglýst til sölu í lok síðasta mánaðar . Um er að ræða 1.100 fermetrar hús sem hannað er eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar húsameistara ríkisins og annað tveggja sem líkjast húsnæðinu sem enn um sinn hýsa höfuðstöðvar bankans í Austurstræti í Reykjavík.

Eins og áður segir bárust fjögur tilboð en fallið var frá einu þeirra. Kaupsamningur þess efnis undirritaður í dag. Landsbankinn mun leigja hluta hússins undir starfsemi sína þar til útibúið flytur á nýjan stað á Selfossi.

Sigtún Þróunarfélag er í eigu Kristjáns Vilhelmssonar, sem á 36% hlut í Samherja, og Leó Árnasonar. Hvor fyrir sig á 44% hlut í félaginu.

„Landsbankahúsið á Selfossi er fallegt og svipmikið hús sem tengist sögu bankans órjúfanlegum böndum. Vegna breytinga á bankaþjónustu er það hins vegar orðið of stórt fyrir starfsemina og það er tímabært fyrir bankann að flytja í nýtt og hentugra húsnæði,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans. „Sigtún Þróunarfélag vinnur nú að uppbyggingu á nýjum miðbæ á Selfossi af miklum myndarskap og mun félagið vafalaust finna húsinu nýtt og spennandi hlutverk.“

„Þessi kaup eru liður í uppbyggingu okkar á Selfossi og undirstrikar þá sannfæringu sem við höfum fyrir framtíðarmöguleikum bæjarins. Húsið er stór hluti af sögu og bæjarmynd Selfoss og í því liggja mikil menningarverðmæti,“ segir Leó Árnason, stjórnarformaður Sigtúns Þróunarfélags. „Sigtún Þróunarfélag er meðvitað um varðveislugildi þess og mun leggja áherslu á að það haldi reisn sinni til framtíðar og að dyr þess verði áfram opnar Selfyssingum og gestum þeirra.“