Isavia og Landsbankinn hafa komist að samkomulagi um að Landsbankinn sinni áfram fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar til útboð hefur farið fram. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbankanum.

Þar segir að allar uppsagnir starfsmanna hafa verið dregnar til baka en ákvörðun um uppsögn 12 starfsmanna flugstöðinni frá og með 1. febrúar sl., var varúðarráðstöfun af hálfu bankans vegna óvissu um framhald starfseminnar þar.

Landsbankinn hefur rekið afgreiðslu í Leifsstöð allt frá opnun og hyggst taka þátt í útboði Isavia um fjármálaþjónustu þegar það fer fram.