Bankaráð nýja Landsbankans (NBI) mun auglýsa eftir nýjum bankastjóra, eins fljótt og aðstæður leyfa og með hliðsjón af því hvenær efnahagsreikningur bankans liggur fyrir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankaráðinu en eins kunnugt er hefur bankaráð óskað eftir því við Ásmund Stefánsson hagfræðing, formann ráðsins, að hann gegni stöðu bankastjóra tímabundið frá og með næstu mánaðamótum, þar til nýr bankastjóri tekur til starfa.

„Að mati bankaráðs, tryggir þetta best samfellu í stjórnun bankans,“ segir í tilkynningu bankans.