Landsbanki Íslands hf. hefur keypt allt hlutafé í Verðbréfun hf. af Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands annars vegar og Íslenska lífeyrissjóðnum hins vegar. Kaupverð er trúnaðarmál. Félagið verður rekið áfram sem dótturfélag Landsbanka Íslands hf. og verða markmið og hlutverk þess óbreytt.