Landsbankinn hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af fjölmiðlaumfjöllun varðandi sölu Landsbankans á íbúðabréfum í aðdraganda þess að kynntar voru breytingar af hálfu ríkisstjórnar Íslands á Íbúðalánasjóði.

Tilkynning Landsbankans er svohljóðandi:

„Starfsmönnum sem annast viðskipti með skuldabréf af hálfu Landsbankans var alls ekki kunnugt um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrr en fréttir þar um voru birtar opinberlega. Farið hefur verið yfir sögu viðskipta bankans með skuldabréf þennan dag og engar óeðlilegar hreyfingar koma þar fram.

Einungis fern viðskipti voru með íbúðabréf eftir kl. 15.00 þennan dag og í öllum tilvikum var þar um að ræða viðskipti sem byggjast á hlutverki Landsbankans sem viðskiptavaka með viðkomandi bréf.

Landsbankinn hafði þannig ekki frumkvæði að sölu umfram það að setja fram tilboð á markaði í samræmi við samning milli bankans og Íbúðalánasjóðs um viðskiptavakt.

Halldóri J. Kristjánssyni bárust upplýsingar um að væntanleg væri yfirlýsing um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar um kl. 15.00 þann 19. júní s.l. sem formanni stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF).

Hann taldi rétt að gera öðrum stjórnarmönnum aðvart um þessar breytingar og bað Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóra SFF að annast útsendingu til þeirra.

Öðrum stjórnarmönnum var gert aðvart um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar með tölvupósti sem sendur var kl. 15.36 eða sex mínútum eftir að markaði með skuldabréf og hlutabréf var lokað.

Af ofangreindu er ljóst að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hafði engin áhrif á ákvarðanir starfsmanna Landsbankans um viðskipti með íbúðabréf og engin óeðlileg viðskipti áttu sér stað af hálfu Landsbankans,“ segir í tilkynningu Landsbankans.