Landsbankinn hefur aukið við hlutabréfaeign sína í Dagsbrún, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar.

Eftir viðskiptin á bankinn 10,41% af heildarhlutafé Dagsbrúnar en fyrir var eignin 9,87% af heildarhlutafé.

Um er að ræða 23.353.564 nýja hluti og miðað við lokagengi félagsins í gær er verðmæti viðskiptana um 152 milljónir króna.

Af eignarhlut Landsbankans eftir viðskiptin eru 443.149.746 hlutir vegna framvirkra samninga, eða 10,21% af heildarhlutafé Dagsbrúnar.