Afgreiðslu Landsbankans í Holtagörðum hefur nú verið lokað en síðasti starfsdagur hennarvar gamlársdagur. Áður hafði meginhluti starfseminnar verið sameinaður rekstri Austurbæjarútibúsins að Laugavegi 77. Í lok janúar mun sameinað útibú Austurbæjar og Holtagarða flytjast í nýtt húsnæði í Borgartúni 33.

Með þessu hefur útibúum bankans verið fækkað úr 9 í 8 en bankinn hafði fyrr á árinu 2012 tilkynnt um lokun fjölda útibúa víða um land sem hluta af sparnaðaraðgerðum bankans.