Landsbankinn fagnar niðurstöðu sérstaks saksóknara að hætta rannsókn á máli sem varðar fjárfestingar á vegum fimm lífeyrjssóða sem voru í umsjá gamla Landsbankans. Þannig er óvissu sem það hefur valdið sem tengst hafa málinu eytt. Staðfesting frá embætti sérstaks saksóknara barst Landsbankanum síðasta miðvikudag, samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsbankanum.

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort stjórnendur og starfsmenn þeirra lífeyrissjóða sem til skoðunar voru, hafi á fyrri hluta árs 2008 farið út fyrir lagaramma um fjárfestingarákvarðanir og hvort upplýsingagjöf þar að lútandi  til FME hafi verið ábótavant. Það var FME sem hóf rannsóknina og kærði síðar málið til sérstaks saksóknara. Rannsóknin hefur staðið yfir í á þriðja ár. Um er að ræða lífeyrissjóðina Íslenski Lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður tannlæknafélags Íslands, Lífeyrissjóður hf. Eimskipafélags Íslands, Kjalar Lífeyrissjóður og Eftirlaunasjóður FÍA.