Landsbanki Íslands færði verulega fjármuni til útibúsins í Bretlandi þessa daga til að standa við skuldbindingar Icesave áður en bankinn leitaði til Fjármálaeftirlitsins í vikunni.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Landsbankanum vegna umræðna í fjölmiðlum um að fjármagnsflutningar milli dótturfélaga og móðurfélaga í aðdraganda þess að íslensk fjármálafyrirtæki leituðu til Fjármálaeftirlits samkvæmt nýsettum lögum.
Í tilkynningunni er fullyrt að engar slíkar færslur hafi átt sér stað á milli Heritable Bank og Landsbankans á umræddu tímabili og bankinn hafi verið að fullu fjármagnaður.
Þá hafi engar færslur átt sér stað frá útibúi Landsbankans í London til móðurfélagsins á Íslandi.
„Landsbankinn vill því taka sérstaklega fram að umræða um þetta efni og ummæli breskra ráðamanna eiga að engu leiti við um Landsbankann,“ segir í tilkynningunni.