Fyrrverandi bankastjórar Landsbankans koma ekki á neinn hátt að rekstri bankans, né hafa þeir aðstöðu eða aðgang að húsnæði og gögnum bankans.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Landsbankinn (NBI hf.) hefur sent frá sér vegna umfjöllunar í fjölmiðlum.
Í tilkynningunni kemur fram að Sigurjón Þ. Árnason hafði afnot að húsnæði í Pósthússtræti á fyrstu vikum eftir formleg starfslok hans og á þeim tíma var hann meðal annars skilanefndinni til upplýsingagjafar. Þá kemur fram að eftir að NBI hf. tók til starfa var Lögfræðisvið bankans, sem áður var til húsa í Pósthússtræti 11, flutt í Austurstræti.
Öll aðstaða var þó fyrir hendi og bankinn enn bundinn af leigusamningi. Því hefur m.a. Nýsköpunarmiðstöð Íslands opnað nýtt viðskiptasetur "Torgið" í húsnæðinu í samvinnu Landsbankans og SSF.