Landsbankinn mun ekki nýta heimild á yfirstandandi rekstrarári félagsins til að gjaldfella lán RÚV ohf hjá bankanum samkvæmt lánssamningum, fari bókfært eiginfjárhlutfall RÚV undir 8%. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Landsbankinn sendi RÚV.

Áréttað er í yfirlýsingu bankans að hún taki eingöngu til yfirstandandi rekstrarárs, sem lýkur í ágústlok og að hún hindri ekki beitingu vanefndaúrræða af öðrum ástæðum er fram kynnu að koma.

Undanfarið hefur verið greint frá bágri rekstrarstöðu RÚV og hefur meðal annars verið greint frá því að fyrirtækið hafi tapað um einni milljón króna á dag á þessu rekstrarári.