Landsbankinn hagnaðist um fjóra milljarða króna á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 3,2 milljarða á sama tímabili á síðasta ári.

Afkoma bankans nemur 699 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og lækkar umtalsvert frá fyrra ári, þegar hagnaðurinn nam 14,4 milljörðum króna á sama tímabili. Varúðarniðurfærslur vegna veirufaraldursins settu strik í reikninginn á fyrri árshelmingi þessa árs. Virðisrýrnun útlána nam tæplega 13,5 milljörðum króna á fyrri árshelmingi en á þriðja ársfjórðungi nam rýrnunin 120 milljónum króna. Virðisrýrnun á árinu jafngildir 1% af eignasafni bankans.

Arðsemi eiginfjár á fyrstu níu mánuðum ársins var 0,4% á ársgrundvelli, samanborið við 7,9% á sama tímabili í fyrra.

Hreinar vaxtatekjur lækkuðu um 6% milli ára og námu 28,4 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 30,1 milljarð króna á sama tímabili á síðasta ári. Hreinar þjónustutekjur lækkuðu um 7% fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við sama tímabil í fyrra, og námu 5,7 milljörðum króna.

Vaxtamunur eigna og skulda nam 2,1% á fyrstu níu mánuðum ársins og lækkar úr 2,4% frá sama tímabili árið áður.

Rekstrarkostnaður bankans nam 17,4 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 17,7 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Þar af var launakostnaður 10,8 milljarðar, sem jókst um 0,1 prósentustig milli ára. Kostnaðarhlutfall var 51,6% fyrstu níu mánuði ársins, samanborið við 41,4% á sama tímabili í fyrra.

Útlán til einstaklinga og fyrirtækja jukust um 10,1% frá áramótum, eða um 115 milljarða króna. Þar af voru 38 milljarðar vegna gengisbreytinga. Landsbankinn hefur aldrei lánað jafnmikið til heimila og á þessum fyrstu níu mánuðum ársins, en íbúðalán námu 89 milljörðum króna. Innlán hjá bankanum jukust um 15% frá áramótum, um 106 milljarða króna.

Eigið fé Landsbankans var 248,4 milljarðar króna í lok september og eiginfjárhlutfall 24,7%.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri:

„Gott uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung endurspeglar styrk á miklum óvissutímum og bankinn er sem fyrr í góðri stöðu til að styðja við bakið á viðskiptavinum. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður í efnahagslífinu finnum við fyrir góðum meðbyr. Mikil eftirspurn er eftir íbúðalánum bankans, jafnt af hálfu þeirra sem eru að kaupa fasteign og þeirra sem eru að endurfjármagna á betri kjörum. Góður gangur hefur verið í eignastýringu og fyrirtækjaráðgjöf bankans, innlán hafa aukist umtalsvert á árinu og nýlega lauk bankinn vel heppnuðu skuldabréfaútboði í norskum og sænskum krónum sem sýnir að bankinn hefur góðan aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum.

Við brugðumst fljótt við áhrifum kórónuveirufaraldurins bæði með því að bjóða viðskiptavinum ýmis úrræði til að takast á við vandann og með því að leggja verulegar fjárhæðir til hliðar vegna vænts útlánataps. Mat bankans á virðisrýrnun sem var gjaldfærð á fyrri árshelmingi var raunsætt og því hafa framlög í virðisrýrnunarsjóð ekki verið aukin nema að litlu leyti á þriðja ársfjórðungi. Áfram er þó mikil óvissa um áhrif faraldursins.

Það er ánægjulegt hversu vel viðskiptavinir okkar hafa tekið breytingum á þjónustu sem óhjákvæmilega hafa hlotist af faraldrinum. Langflest erindi er hægt að leysa í síma eða í gegnum tölvu. Frá því að faraldurinn hófst hafa um 20.000 manns pantað tíma í útibúi eða símtal og margir nýtt sér netspjall bankans til að hafa samband. Skilvirkni, gott starfsfólk og öflug stafræn þjónusta gera það að verkum að við höfum getað tekist á við aukið álag og sinnt erindum viðskiptavina fljótt og vel. Ánægja með þjónustuna mælist mikil og fjölmargir nýir viðskiptavinir hafa bæst í hópinn, jafnt fyrirtæki sem einstaklingar. Markaðshlutdeild bankans er sterk og hefur farið vaxandi."