„Landsbankinn hefur ekki  óskað eftir sérstökum fundi með Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. til að ,,vara við því að hætta væri á að greiðsluflæði gjaldeyris inn í NBI stæði ekki fyllilega undir afborgunum af skuldabréfinu...“  eins og lesa má í frétt Morgunblaðsins í dag. Sú frétt er reyndar stormur í vatnsglasi og þjónar einhverjum tilgangi öðrum en að upplýsa lesendur.“

Þetta segir í fréttatilkynningu frá bankanum vegna fréttar Morgunblaðsins. Í Morgunblaðinu í dag segir að fulltrúar Nýja Landsbankans hafi fundað með skilanefnd gamla Landsbankans í vikunni vega skuldabréfs sem NBI gaf út til gamla bankans í tengslum við uppgjör þeirra á milli. Áhöld eru um getu nýja Landsbankans til að greiða 280 milljarða skuldabréfið sem á allt að greiða í erlendum gjaldeyri.

Munu fulltrúar NBI hafa sagt að bankinn myndi að öllu líkindum ekki geta greitt skuldabréfið að fullu upp í erlendrum gjaldeyri og komu með tillögu um að ákvæðum bréfsins yrði breytt þannig að hluta þess yrði breytt þannig að hluta þess mætti greiða í íslenskum krónum.

Úr tilkynningu Landsbankans:

„Gjaldeyrisstaða Landsbankans er sterk og gjaldeyriseignir og –skuldir í jafnvægi. Þegar horft er 5 – 7 ár fram í tímann kann að verða misræmi milli inn- og útgreiðslna í erlendri mynt en það er þó alls ekki víst.  Alltaf hefur verið ljóst að Landsbankinn þyrfti að endurfjármagna hluta af erlendum skuldum sínum líkt og á við um flesta banka og fyrirtæki hér á landi og erlendis.

Einhverjir munu lesa frétt Morgunblaðsins og þá sérstaklega fyrirsagnir á innsíðum sem svo að bankinn standi ekki undir skuldbindingum sínum. Óþarft er að hafa áhyggjur af slíku, bankinn er með mjög sterka eiginfjárstöðu og telur enga þörf á frekari inngreiðslum eiginfjár frá eigendum.

Lausafjárstaða Landsbankans er einnig mjög sterk, hlutfall hennar er um 46% af innlánum sem er mjög hátt og því ætti Landsbankinn að geta keypt erlendan gjaldeyri á næstu árum til að mæta skuldbindingum sínum, gerist þess þörf.

Afar ólíklegt verður því að teljast að þessi atburðarás sem Morgunblaðið oftúlkar að hætti hússins, muni hafa áhrif á Icesave málið og skuldbindingar íslenska ríkisins vegna þess.

Í annað skipti á mjög stuttum tíma hefur Morgunblaðið nú kosið að birta villandi skrif á forsíðu um Landsbankann. Síðastliðinn laugardag dregur blaðið fram með áberandi hætti, byggt á stopulu minni útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, að ríkið hafi lagt Landsbankanum til 280 milljarða króna. Hið rétta er að ríkið lagði bankanum til 122 milljarða króna og skeikar því litlum 158 milljörðum króna. Óskandi væri að Morgunblaðið sýndi lesendum sínum þá kurteisi að grafast fyrir um staðreyndir og birta það sem sannast er.“