Landsbankinn hefur aukið hlut sinn í Teymi í 10,74% úr 9,89%, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 30.097.847 hluti en kaupgengið kemur ekki fram. Ef miðið er við lokagengið á föstudag, 5,02, er kaupverðið um 151 milljón króna.

Af eignarhlut Landsbankans eftir viðskiptin er um 7,59% eignarhlutur, vegna framvirkra samninga, eða 271.068.727 hlutir.