Það birtir yfir á hlutabréfamarkaðinum. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,92% frá opnun markaðar og er 5.446,62 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Landsbankinn hefur hækkað langmest eða um 7,51%, FL Group hefur hækkað um 2,67%, Bakkavör Group hefur hækkað um 1,26%, Kaupþing banki hefur hækkað um 1,09% og Glitnir hefur hækkað um 0,61%.

Atorka Group er eina félagið sem hefur lækkað það sem af er degi og nemur lækkunin 0,90%.