Í framhaldi af stýrivaxtahækkun Seðlabankans í vikunni hefur Landsbankinn ákveðið að breyta óverðtryggðum vöxtum til samræmis við breytingar Seðlabankans.

Vextir óverðtryggðra útlána hækka um allt að 6 prósentustig en vextir yfirdráttarlána námsmanna og greiðsluþjónustureikningar hækka um 3 prósentustig.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en eins og kunnugt er hækkaði Seðlabankinn stýrivexti sína í vikunni úr 12% í 18%.

Í tilkynningunni kemur fram að vextir óverðtryggðra innlána hækka almennt meira, eða um allt að 6,3 prósentustig, og á það meðal annars við um Vaxtareikning Landsbankans.

Vaxtabreytingin tekur gildi á morgun, 1. nóvember.