Landsbanki Íslands hefur undanfarið átt í viðræðum við stjórn Close Brothers Group plc í því skyni að kanna grundvöll þess að gera yfirtökutilboð í allt útistandandi hlutafé félagsins á genginu 950 pens á hlut að því er kemur fram í tilkynningu bankans.  Þar kemur fram að viðræður um viðskiptin eru enn á frumstigi og engin vissa er fyrir því að þær muni leiða til þess að gert verði yfirtökutilboð í Close Brother’s Group plc. en gangi viðskiptin eftir, hefur Landsbankinn í hyggju að kaupa bankastarfsemi Close Brothers Group plc en Cenkos Securities plc mun halda eftir öðrum þáttum starfseminnar félagsins.