Landsbankinn hefur ákveðið að lækka verðtryggða útláns- og innlánsvexti sína. Verðtryggðir útlánsvextir bankans lækka um 0,45 prósentustig. Verðtryggðir innlánsvextir lækka nokkru minna eða um 0,20 til 0,45 prósentustig. Verðtryggðir kjörvextir bankans lækka því úr 5,4% í 4,95%. Ákvörðun um lækkun verðtryggða vaxta er til komin vegna þróunar á verðtryggðum vöxtum á fjármálamarkaði að undanförnu segir í tilkynningu bankans.

Landsbankinn býður ennfremur viðskiptavinum, sem uppfylla ákveðin skilyrði, Íbúðalán á 4,4% föstum verðtryggðum vöxtum til allt að 40 ára.