Landsbanki Íslands hefur aukið hlut sínn í fjölmiðla- og fjarskiptasamtæðunni Dagsbrún í 10,48% úr 9,97%, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Af eignarhlut Landsbankans eftir viðskiptin eru 368.669.772 krónur að núvirði vegna framvirkra samninga, eða 8,49% af heildarhlutafé Dagsbrúnar.