Landsbankinn hefur minnkað hlut sinn í FL Group úr 22,08% í 17,22%, samkvæmt tilkynningu frá Kauphöllinni.

Þar segir að af eignarhlut Landsbankans eftir viðskiptin eru krónur 699.161.696 að nafnverði vegna framvirkra samninga, eða 11,39 % af heildarhlutafé FL.

Við þessi viðskipti fer eignarhlutur bankans sjálfs úr 10,70% í 5,83%, en þar af er 4,76% eignarhlutur til varnar vegna afleiðusamninga

Fyrr í dag var tilkynnt um að Eignarhaldsfélagið Oddaflug, sem er í eigu Hannesar Smárasonar forstjóra FL Group, hafi bætt við sig 4,73% hlut í FL Group.